Unnur Hildur Þorsteinsdóttir stimplar sig inn í veiðikeppnina með 80 sentimetra maríulax.  Laxinn veiddi Unnur á svartan Toby við Iðu í Hvítá.  Eftir myndatöku var þessum fallega fiski sleppt.

Myndina sendi Þorsteinn Eyþórsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.