Veiðikonan Hrafntinna Amelía Gísladóttir er búin að vera í fríi úti á landi þar sem hún bjó til og veiddi á sína eigin heimatilbúnu veiðistöng sem sést á þessum myndum.  Hér er Hrafntinna með þorsk og 2 marhnúta sem hún veiddi á veiðistöngina sína.  Hrafntinna hefur áður sent inn myndir með fleiri tegundum.

Myndirnar sendi Lúna Grétudóttir.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.