Þetta er hún Alexandra Ýr Árnadóttir sem fór að veiða með pabba sínum.  Ekkert gekk í spúnaveiðinni svo hún fékk lánaða flugustöngina hans pabba og fékk 37 sentimetra urriða í fyrsta kasti.  Þau voru við veiðar í Selvatni á Skagaheiði og urriðinn tók bleikan Dýrbít.

Myndina tók pabbi, Árni Snær Brynjólfsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.