Arnar Magni Lárusson 10 ára er hér með þrjá urriða sem hann landaði við Ölfusárós í landi Eyrarbakka. Tvo veiddi Arnar á beitu og einn á spún. Arnar notaði heimagerðan rotara sem hann og pabbi hans gerðu saman til að rota fiskana.
Myndina sendi Ingunn Helgadóttir.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.