Sigurjón Bjarni Óskarsson landaði glæsilegum urriða sem tók Toby spún í Ölfusárósi.  Þolinmæðin skilar sér yfirleitt því Sigurjón sagðist ekki ætla heim fyrr en hann fengi fisk og í þeim töluðu orðum tók þessi 48 sentimetra sjógengni urriði.

Myndina tók Ásdís Alda Ögmundsdóttir.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.