Tags:
Bleikja / Lax / Urriði / Veidikeppni 2026
Eldar Máni Ósmann Steinarsson var iðinn við kolann í sumar. Hann veiddi meðal annars bleikjur í Hlíðarvatni, sjóbirting í Ölfusá, lax í Leirvogsá, staðbundinn og sjógenginn urriða í Þverá í Fljótshlíð.
Myndirnar sendi Sigurður Ósmann Jónsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
