Þórólfur Pétursson með urriða sem hann veiddi í bæjarlæk sem rennur í Héraðsvötn í Skagafirði.  Urriðinn tók rauða vorflugu sem veiðimaðurinn ungi valdi og kastaði sjálfur.  Pabbi, Pétur Helgi Einarsson fékk að háfa fiskinn fyrir veiðimanninn.

Myndina tók Helga Björg Þórólfsdóttir.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.