Sigurjón Bjarni Óskarsson landaði glæsilegum urriða sem tók Toby spún í Ölfusárósi. Þolinmæðin skilar sér yfirleitt því Sigurjón sagðist ekki ætla heim fyrr en hann fengi fisk og í þeim töluðu orðum tók þessi 48 sentimetra sjógengni urriði.
Myndina tók Ásdís Alda Ögmundsdóttir.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.