Hann Jóhann Manúel er heldur betur duglegur veiðimaður.  Hann veiðir næstum á hverjum degi og bryggjur og vötn þrædd þegar fjölskyldan ferðast.  Hér eru nokkrar myndir frá Jóhanni.  Fleiri bíða birtingar en hann er kominn með margar tegundir í keppnina.  Á þessum sjáum við þorsk, urriða og hrognkelsi.

Myndirnar sendi Unnur Ósk Unnsteinsdóttir

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.