Tags:
Koli / Skrápflúra / Ufsi / Veidikeppni 2026
Hér koma nýjar myndir frá Kristjáni Agli Gíslasyni en hann bætir nú þremur tegundum við í keppnina. Hér er Kristján með ufsa, sandkola og skrápflúru sem hann veiddi á svartan Toby í Suðureyrarhöfn.
Myndirnar tók Gísli Kristjánsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
