Þetta er hún Alexandra Ýr Árnadóttir sem fór að veiða með pabba sínum. Ekkert gekk í spúnaveiðinni svo hún fékk lánaða flugustöngina hans pabba og fékk 37 sentimetra urriða í fyrsta kasti. Þau voru við veiðar í Selvatni á Skagaheiði og urriðinn tók bleikan Dýrbít.
Myndina tók pabbi, Árni Snær Brynjólfsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.