Unnur Hildur Þorsteinsdóttir stimplar sig inn í veiðikeppnina með 80 sentimetra maríulax. Laxinn veiddi Unnur á svartan Toby við Iðu í Hvítá. Eftir myndatöku var þessum fallega fiski sleppt.
Myndina sendi Þorsteinn Eyþórsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.