Arnar Magni Lárusson 10 ára er hér með þrjá urriða sem hann landaði við Ölfusárós í landi Eyrarbakka.  Tvo veiddi Arnar á beitu og einn á spún.  Arnar notaði heimagerðan rotara sem hann og pabbi hans gerðu saman til að rota fiskana.

Myndina sendi Ingunn Helgadóttir.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.