Kristmann Sigurbjarnarson mætir hér með tvo fiska í veiðikeppnina.  Sá fyrri er sjóbleikja sem hann veiddi á spún í Hálsavatni, Rekavík á Hornströndum og naut aðstoðar afa, Magnúsar Kristmannssonar við löndun.  Seinni fiskurinn er ufsi sem Kristmann veiddi á spún í Nauthólsvík.  (Með honum á myndinni er starfsmaður Vatnasportsklúbbsins í Nauthólsvík).

Myndirnar tók mamma, Brynhildur Magnúsdóttir.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.