Tags:
Bleikja / Hornsíli / Marhnútur / Urriði / Veidikeppni 2026
Hann Theodór Helgi Þorbergsson er mættur til keppni með nokkrar tegundir. Theodór veiddi 38 sentimetra urriða á spún og 32 sentimetra bleikju á Krókinn í Laugarbólsvatni og auk þess náði hann hornsíli í gildru. Síðar veiddi Theodór marhnút á bryggjunni á Siglufirði. Marhnúturinn kom á spún.
Myndirnar tók Þorbergur Haraldsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
