Tags:
Koli / Marhnútur / Veidikeppni 2026
Guðmundur Marís varð fyrir því óhappi að brjóta hnéskel og þarf því að vera í gifsi næstu vikurnar. Hann lætur það þó ekki stoppa sig í veiðinni og er nú kominn með þrjár tegundir fiska.
Hér er Guðmundur á bryggjunni í Þorlákshöfn, nýbúinn að landa kola og marhnút en áður höfum við birt af Guðmundi með urriða.
Myndirnar tók Sóley Rut.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
