Hann David Egyed, 9 ára gerði góða veiði á Reykjavíkurhöfn á laugardaginn þegar hann landaði 34 sm. ufsa, 22 sm. þorski, 25 sm. kola, 30 sm. flundru og 19 sm. marhnút.  Fiskarnir veiddust allir á rækju. David er því kominn með fimm fiska í veiðibókina góðu.

Myndirnar tók Balazs Egyed.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.