Marinó Gísli Magnason 7 ára sem hafði misst urriða á Apavatni þegar hann fór með stóra bróður Nökkva Frey 9 ára og pabba fór aftur til veiða en nú í Elliðavatn og gerði sér lítið fyrir og landaði þessum 48 sentimetra, 1.140 gramma urriða á maðk. Stærsti fiskur þessa unga veiðimanns til þessa.
Myndina tók Magni Þórarinsson
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.