Tags:
Áll / Koli / Krossfiskur / Marhnútur / Ufsi / Veidikeppni 2026 / Ýsa
Systurnar Bríet og Marín Björgvinsdætur skruppu í Veiðihornið og náðu sér í veiðistangir og spúnabox. Mikil spenna og gleði á því heimilinu því þær eru algjörar aflaklær og nú þegar komnar með 6 tegundir eða ufsa, ýsu, kola, marhnút, krossfisk og óráðna tegund sem líklega er sæsteinsuga.. Fiskana veiddu þær á bryggjunum í Hafnarfirði og Kópavogi og tóku þeir ýmist maðk eða spún.
Myndirnar tók Björgvin Þór Heiðarsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
