Ívar Karel Bergþórsson er kominn með þrjár tegundir sem hann veiddi á bryggjunni á Akranesi.  Sjóbirtingurinn tók síldarspún en Ívar beitti makríl fyrir þorskinn og ufsann.

Myndirnar sendi Halldóra Hallgrímsdóttir.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.