Karl Guðmundur Kjartansson 3ja ára með sinn fyrsta fisk.  Bleikja sem hann setti í með aðstoð pabba en landaði sjálfur.  Bleikjan sem mældist 33 sentimetrar tók appelsínugulan Nobbler.  Feðgarnir veiddu líka 35 og 45 sentimetra urriða í sömu ferð og var stærri urriðinn með 3 laxaseiði í maganum.  Fiskana veiddu þeir í Laugardalsvatni fyrir vestan.

Myndirnar tók Karl Guðmundur Kjartansson

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.