Hrafn Viggó Jónsson er búinn að vera duglegur að veiða í sumar og senda myndir inn í veiðikeppnina.  Hér er Hrafn Viggó með bleikjur úr Langavatni í Veiðivötnum, og ufsa og marhnút sem hann veiddi á bryggjunni við siglingaklúbbinn Ými.  Fiskana veiddi veiðimaðurinn á beitu og spún.

Myndirnar tók Jón Viggó Gunnarsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.