Hann Arnar Derrick Stephens er hér með annan laxinn sem hann sendir inn í veiðikeppnina. Þessi er 65 sentimetrar og vóg 3.1 kíló. Fiskurinn sem Arnar veiddi í Húsavíkurfjöru er líklega strokulax úr eldi. Arnar sá fleiri, dreif sig heim með aflann og út aftur með fullan poka af nesti því hann ætlar að ná þeim öllum.
Myndina sendi Svava Arnarsdóttir.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.