Guðmundur Sölvi Feykisson heldur áfram að fjölga tegundum en hann hefur áður sent okkur myndir af fiskum sumarsins.  Hér er Guðmundur með sandkola sem hann veiddi á rauðan Toby á Sauðárkrókshöfn.

Myndina tók Feykir Sveinsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.