Árný Bára Feykisdóttir hefur áður sent okkur myndir af fiskum í sumar og hér bætir hún einni tegund við. Árný er hér með sandkola sem hún veiddi á síld á Sauðárkrókshöfn.
Myndina tók Feykir Sveinsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.