Sigurjón Emil Ragnarsson Blandon er hér með tvo urriða.  Staðbundna urriðann veiddi hann í Þórutjörn á 12 gramma Toby en þann sjógengna veiddi hann á 18 gramma svartan Toby.  Sigurjón tók „selfie“ af sér og sjóbirtingnum og naut aðstoðar pabba við að halda á þessum stóra fiski.

Myndirnar sendi Ragnar Smári Rúnarsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.