Alexandra Ýr Árnadóttir bætir hér við öðrum fiski í keppnina. Hér er Alexandra með 59 sentimetra þorsk sem hún veiddi á svartan Abu Toby úti fyrir strönd Grímseyjar.
Myndina tók mamma, Ingibjörg Ósk.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.