Hún Alexandra Ýr Árnadóttir er hér að bæta við sinni þriðju tegund í veiðikeppnina.  Þetta er 14 sentimetra marhnútur sem Alexandra veiddi í Grímsey.

Myndina tók pabbi, Árni Snær Brynjólfsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.