Hún Magnea Myrra Hrafnsdóttir er nýbúin að landa sínum fyrsta fiski.  Þennan 50 sentimetra, 1.256 gramma urriða veiddi hún á flugu sem hún kastaði með bombarda langt út á Elliðavatn.  Magnea sagði að það væri gaman að veiða og sér fyndist fiskurinn fallegur.

Myndina tók Hrafn Sigurðsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.