Kristján Nonni Snær Róbertsson hefur verið duglegur að veiða en fyrr í sumar veiddi hann lax og bleikju í veiðiferð með afa, á bryggjunni í Mjóafirði landaði hann 17 kolum og allir sem vildu á tjaldstæðinu fengu kola á grillið.  Auk þess veiddi Kristján Nonni þorsk, marhnút og krossfisk á Djúpavogi.

Myndirnar sendi Sólveig Kristjana Jónsdóttir.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.