Henrik Daði Hreggviðsson var að detta í þriggja fiska hópinn því hann var að landa marhnút og var áður búinn að veiða tvær tegundir, urriða og bleikju. Henrik Daði veiddi marhnútinn á bryggjunni í Hafnarfirði.
Myndina sendi Díana Björk Eyþórsdóttir.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.