Hún Klara Sjöfn Ásgeirsdóttir tók þátt í veiðikeppni unga fólksins í sumar.  Einn laugardag í ágúst veiddi hún 0.6 kílóa sjóbirting í Þjórsá og daginn eftir skrapp hún í Veiðivötn með fjölskyldunni og veiddi fjóra fallega urriða.  Alla fiskana veiddi hún á maðk.  Klara sá svo um að skipuleggja veiði næsta dags á kvöldin.

Myndirnar sendi Ásgeir Viktorsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.