Tags:
Krabbi / Lax / Marhnútur / Veidikeppni 2026
Dagur Már Ársælsson náði 6 tegundum í sumar. Í þessari færslu er hann með marhnút, laxaseiði og krabba. Marhnúturinn tók spún á bryggjunni í Þorlákshöfn, laxaseiðið flugu í Elliðaánum og krabbinn tók beitu á bryggjunni á Vogum á Vatnsleysuströnd.
Myndirnar sendi Svala Sigurðardóttir.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
