Rökkvi Þór Hilmarsson elskar að veiða og er búinn að fara í nokkrar veiðiferðir í sumar.  Hér er Rökkvi með bleikju úr Langavatni og aðra sem hann veiddi við Hvalvatnsfjörð.  Báðar bleikjurnar veiddi hann á spún.

Myndirnar tók pabbi, Hilmar Leonardsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.