Hann Hafsteinn Guðni Birgisson var duglegur að veiða í sumar og landaði mörgum tegundum.  Þar á meðal fékk hann marhnút, þorsk, kola, flundru, bleikju og bæði sjógenginn og staðbundinn urriða.  Fiskana veiddi Hafsteinn í Varmá í Mosfellsbæ, Seleyri við Borgarnes, Laugardalsvatni í Ísafjarðardjúpi og fjölmörgum bryggjum.

Myndirnar sendi Birgir Þór Halldórsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.